Enn hefur ekki fundist lyf sem getur stöðvað eða læknað MND/ALS en þó munu vera einhverjar rannsóknir í
gangi á lyfjum. Nauðsynlegt er fyrir þá sem greinast að hugsa fram í tímann varðandi það
hvernig hægt er að auðvelda sér að takast á við helstu einkenni sjúkdómsins sem er vöðvarýrnun.
Nú er komið á fót teymi sérfræðinga á Landspítalanum fyrir MND/ALS sjúklinga og aðstandendur þeirra, en í því teymi eru: Taugasérfræðingur, taugasálfræðingur, næringarfræðingur, iðjuþjálfi, sjúkraþjálfi, MND sjúklingur, sálfræðingur, djákni, félagsráðgjafi, hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar, en allt þetta fólk hefur sérhæft sig í meðferð MND sjúkdómsins. Ljóst er að þessum sjúkdómi fylgir bæði líkamlegur og andlegur sársauki og því nauðsynlegt fyrir bæði þá sem greinast og fjölskyldur þeirra að komast sem fyrst í samband við teymið og fá upplýsingar um sjúkdóminn, hjálpartæki,stuðning ofl. Áhugavert er að MND virðist ekki valda greindarskerðingu en hins vegar hafa læknar komist að því að MND sjúklingar eru sérstaklega viðfeldið, aðlaðandi og þægilegt fólk. Geta verið tengsl á milli viðmóts og MND? |