|  
       LOL 
        203 
       | 
     
       Parkinsonsveiki 
     | 
  ||||||||||||||||||||||||||
|  
       
  | 
    
       Parkinsonsveikin er einn algengasti taugasjúkdómurinn sem hrjáir eldra fólk.Talið er að allt að eitt prósent einstaklinga sem náð hafa sextíu og fimm ára aldri þjáist af parkinsons-veikinni. Það er talið aðeins um 10% þeirra sem greinist með sjúkdóminn séu undir fjörutíu ára aldri og mjög sjaldgæft er að hann greinist í unglingum. Hér á Íslandi fær einn af hverjum fimm þúsundum Parkinson-veikina árlega. Sjúkdómurinn er skæður um allan heim og þess má geta að yfir ein milljón Bandaríkjamanna þjáist af Parkinson-veikinni og þar greinast tuttugu af hverjum hundraðþúsund með veikina árlega. Ef litið er á tíðni sjúkdómsins með heimsyfirsýn þá er talið að sjúkdómurinn hrjái einn eða tvo af hverjum þúsund og er hann algengari í Evrópu og Norður-Ameríku en í Asíu og Afríku. 
 --Kristján Þór Gunnarsson  | 
  ||||||||||||||||||||||||||
Taugavefurinn, Parkinsonsveiki og Alzheimers
  Höfundar: Sævar Ingþórsson og Kristján Þór 
  Gunnarsson 
  Vefari: Sævar Ingþórsson 
  
  Jarðfræði-, landafræði- og líffræðideild 
  Fjölbrautaskóla Suðurlands á 
  Selfossi
  Síðast uppfært: 14.apríl 
  2001.