[Aðalsíða] / [Líf, kennsluáætlun 1.-3. viku]

Verkefni 2: Mælingar og úrvinnsla á gögnum


Markmið: 
  • Að nemendur kynnist mælingum, úrvinnslu gagna og framsetningu þeirra á myndrænan hátt. 
  • Að nemendur læri að gera skýrslu um líffræðileg viðfangsefni. 
Framkvæmd:
  • Mælið lengd annarrar kjúku á löngutöng vinstri handar og skráið niður. 
  • Setjið niðurstöður mælinga hjá öllum í hópnum í töflu.  Gerið annars vegar töflu fyrir kjúkulengd stráka og hins vegar töflu fyrir kjúkulengd stelpna. 
  • Setjið fram þá tilgátu að karlmenn séu að meðaltali með lengri aðra kjúku á vinstri hönd en konur. 
  • Reiknið meðal kjúkulengd stelpna og stráka. 
Úrvinnsla:
  • Teiknið stöplarit sem sýnir stærðardreifingu kjúkulengdar hjá stelpum og strákum. 
  • Reiknið % mun á meðaltali kjúkulengdar stráka og stelpna. 
Skýrsla: 

Skrifið skýrslu með eftirtöldum köflum:
 

  • Inngangur.  Gerið grein fyrir tilgátunni sem sett er fram. 
  • Efni og tæki.  Gerið skrá yfir efni og tæki sem notuð eru við mælingar. 
  • Framkvæmd.  Lýsið framkvæmd mælinga. 
  • Niðurstöður.  Hér á að birta niðurstöður mælinga í töflum (það er niðurstöður flokkaðar eftir stærðarflokkum) og meðaltöl kjúkulengdar hjá strákum og stelpum. 
  • Úrvinnsla.  Hér birtast stöplaritin og útreikningar á % mun á meðaltali kjúkulengdar hjá strákum og stelpum. 
  • Túlkun niðurstaða.  Fjallið um það hvort niðurstöður mælinga styðja tilgátuna eða ekki. 
  • Skekkjur og mat.  Er möguleiki að skekkjur í mælingum geti haft áhrif á niðurstöður? 


Fjölbrautaskólinn við Ármúla, september 2002
Kennarar:  Guðfinna Björg Steinarsdóttir gbs@fa.is, María Björg Kristjánsdóttir maria@fa.is og Sigurlaug Kristmannsdóttir sigurlaug@fa.is