Til baka
 

 

Kopar - Cu

 

Sćtistala: 29
Atómmassi: 63,546

Bygging atómsins: Kopar er hliðarmálmur og í kjarna atomsins eru 29 róteindir og 34 nifteindir. Kopar hefur eina gildisrafeind á ysta hvolfi.

Sagan. Talið er að mannkynið hafi nýtt Kopar í 10.000 ár, lengur en nokkurn annan málm, en hann finnst sem málmgrýti á yfirborði og þekkist á sínum rauða lit. Um 6.000 f. kr. smíðuðu Egyptar Koparvopn og um 5.000 f. kr. hefst bronsöld.
Eyjan Kýpur í Miðjarðarhafinu var ein helsta koparnáma í hinum forna heimi en koparforði Rómverja kom nær eingöngu þaðan enda nefndu þeir þennan rauðleita málm" aes Cyprium" eða málmurinn frá Kýpur,sem síðar var stytt í cyprium og svo í Cuprum eða Kopar eins og það þekkist nú.
Enn þann dag í dag er Koparinn manninum mikilvægur vegna eiginleika sinna. Hann leiðir hita og rafmagn mjög vel, auðvelt er að forma Kopar og hægt er að ná fram ólíkum eiginleikum með því að blanda Kopar við ýmsa málma, yfir 100 mismunandi blöndur eru þekktar. Komist Kopar í samband við rakt loft myndast spanskgræna, græn eitruð húð, en hún kemur í veg fyrir að hann ryðgi.

Frábær leiðari. Rafleiðni efna, hæfni þeirra til að leiða rafstraum, er geysilega mismunandi. Kopar er frábær leiðari og kemst næst Silfri í rafleiðni en er vitaskuld mikið ódýrari í framleiðslu. Þess vegna er hann mikið notaður í hverskyns iðnaði.

Pottar og pönnur. Kopar finnum við víða í eldhúsum fólks í pottum og pönnum sökum eiginleika sinna. Koparílát undir matvæli ættu þó að vera húðuð ef ekki þá er nauðsynlegt að hreinsa þau vel fyrir notkun vegna spanskgrænu sem minnst er á her að ofan.

Skartgripir. Í um 5000 ár hefur kopar verið notaðr í skart og ýmsa muni. Sé honum blandað við tin verður úr því Brons en slíkt hefur verið vinsælt efni í skrautmuni um aldir. 12 ára brúðkaupsafmæli er tileinkað kopar.

Mannslíkaminn. Í fullvöxnum manni eru 80 mg af kopar. Mest er af honum í lifrinni og heilanum. Kopar er sérstaklega mikill í lifur fóstra og nýbura en talið er að koparinn sé eins konar forði á meðan barnið er á brjósti, því að þá er koparupptakan lítil. Kopar gegnir mikilvægu hlutverki við myndun beina, blóðrauða og rauðra blóðkorna. Talið er að koparskortur geti verið einn af stærri áhættuþáttum sem valda hækkaðri blóðfitu, fituhrörnun æða ásamt öðrum hjarta og æðasjúkdómum.

Vissir þú? Eflaust kannast einhver við að liðagigtarsjúklingum hafi verið ráðlagt að vera með kopararmbönd sér til heilsubótar. Margir hafa talið þetta kerlingabækur, en nú hefur rannsókn sem gerð var í Ástralíu leitt í ljós að þessi kenning er byggð á vísindalegum grunni.

Kopar í fæðu. Kopar finnst víða í fæðu t. d. möndlum, hnetum, avokadó, baunum, byggi, mólassa, spergilkáli, hvítlauk, linsum, lifur, sveppum, höfrum, appelsínum, radísum, rúsínum, laxi, sjávarfangi, sojabaunum og grænu laufguðu grænmeti. Kopar kemst einnig í fæðuna hjá okkur við að leysast upp úr vatnsleiðslum og eldhúsáhöldum.


Kopar og framtíðin. Eftirspurn eftir Kopar fremur vex en minnkar síðustu ár. Tölvur, sem og önnur rafmagnstæki, þurfa jú kopar og því má slá sem föstu að Kopar mun áfram gegna veigamiklu hlutverki í samfélagi manna um ókomna framtíð.


Höfundur: Ingibjörg Vilhjálmsdóttir, Nát123

 

Fjölbrautaskólinn viđ Ármúla, október 2002/GS, RÁG, SK