Nát 123



3.5 Stilltu eftirfarandi efnajöfnu:

 

d

C4H10  +  O2  ®  CO2  +  H2O

Atómin vinstra megin í jöfnunni eru:

4C

10H

2O

 

Atómin hægra megin í jöfnunni eru:

1C

2O+1O=3O

2H

Þennan fjölda þarf að jafna út: 

 

Byrjum á C og setjum 4 fyrir framan CO2                 C4H10  +  O2  ®  4 CO2  +  H2O

 

Tökum því næst H og jöfnum út fjölda þess            C4H10  +  O2  ®  4 CO2  +  5 H2O

 

Eftir er að jafna út fjölda á O, en nú erum við með 13 O hægra meginn í jöfnunni en aðeins 2 O vinstra meginn, þetta getum við leyst með því að setja 6,5 fyrir framan O2:

                                    C4H10  +  6,5 O2  ®  4 CO2  + 5 H2O

 

Ef við kjósum heldur að hafa stuðlana heilar tölur, þá getum við margfaldað jöfnuna með 2:

                                    2 C4H10  +  13 O2  ®  8 CO2  + 10 H2O

 

 


FÁ - ©Sigurlaug Kristmannsdóttir/Höfundarréttaráminning