Líkamleg einkenni:
|
![]() |
Til hjálpar:
|
Skjálfti er dæmigert einkenni og yfirleitt fyrsta einkennið. Hendur eða höfuð hristast á ósjálfráðan og reglubundinn hátt. Skjálftinn er áberandi þegar viðkomandi líkamshluti er í hvíld og dvínar þegar hann er í notkun. Ef sjúkdómurinn versnar getur viðkomandi orðið óskýr í tali og átt í erfiðleikum með t.d. að skrifa. Með árunum fær sjúklingurinn mjög einkennandi göngulag fyrir parkinson sjúkdóminn og er eins og honum sé beinlínis hrint áfram. Viðkomandi finnur ekki fyrir sársauka heldur sífellt minnkandi getu til að hreyfa sig. Reyndar þegar vissir líkamshlutar stirðna og sjúklingurinn getur illa eða ekki hreyft hann myndast verkur. Með auknum vöðvastirðleika hallast líkaminn fram á við og handleggir verða bognir og við það verður jafnvægisleysi. Á síðari stigum sjúkdómsins er hnignandi minni og hugsunargangur. |