|
Bólga hleypur í skjaldkirtilinn, oftast vegna veirusýkingar og veldur tímabundinni röskun á starfsemi hans. Þetta er sjaldgæf orsök ofvirkni í skjaldkirtlinum.
Þessu fylgja einnig verkir framan hálsi ásamt hita.
Hver er orsökin?
Ekki er vitað með vissu hver orökin í skjaldkirtlinum er, en orsakir geta verið margvíslegar. Líklegar orsakir eru meðfæddar genveilur sem leiða til ofvirkni í kirtlinum (hypertrótískar eða hyperplasískar frumubreitingar) sem seinna meir getur orðið illkynja, bilun í stýringu THS-losunar sem getur verið erfitt að greina, aukið álag á skjaldkirtlinum, t.d. mið kynþroska (kvenna), þungun og meðganga og jafnvel í kjölfar breytingaskeiðs kvenna. Fólk er misþolið gagnvart skjaldkirtils eitrun, einkum fólk sem er með hjartasjúkdóma fyrir. Sjúkdómurinn er 5-10 sinnum algengari hjá konum en körlum. Ýmislegt bendir til þess að umhverfisþættir eins og Sígarettureykingar, sum lyf eins og Lítíum og Cordaron, eða of mikil eða of lítil joðneysla geti í sumum tilfellum orsakað sjúkdóminn.
|