LOL 103, verkefni nemenda haustönn 2000. / Ofvirkur skjaldkirtill.

Hver eru einkenni ofvirks skjaldkirtils?

kona:
Kona með ofvirkan skjaldkirtil.
Einkennin geta verið mismunandi eftir einstaklingum og ástandi sjúkdómsins. En þessi eru fremur algeng.
  • Ofvöxtur í hluta eða öllum skjaldkirtlinum.
  • Aukin bruni vegna mikils magns Thyroxins í blóði.
  • Aukinn hjartsláttur (hjartabank) og háþrýstingur.
  • Aukin mæði.
  • Aukin matarlyst og orkuþörf.
  • Megurð vegna aukins bruna.
  • Aukin andleg starfsemi, t.d. eirðaleysi, kvíði, svefnleysi, handskjálfti (tremor monum), einkum við fínhreyfingar.
  • Svæsnar tíðarblæðingar meðal kvenna.
  • Augnkvillar t.d. útstæð augu.
  • Húðkvillar og ónæmisbilun.

Greinst hafa óeðlileg mótefni í blóði sumra sjúklinga (HLA-DR3) sem stafar af T-eitilfrumna bilun. Sjaldkirtilshormón hafa áhrif á mörg líffæri líkamans og þar geta einkenni komið samtímis frá mörgum þeirra (heila, hjarta, vöðvum o.s.frv.)

Í sumu fólki, sérstaklega öldruðum, koma einkenni fram frá einu eða fleirri líffærum.


Hormónavefurinn. Ofvirkur skjaldkirtill.
Höfundar: Bjarney Sigurlaugsdóttir, Jóhanna Ósk Aradóttir,
Lilja Böðvarsdóttir.
Vefari: Sigurlaug Kristmannsdóttirsigurlaug@arnarson.is
Jarðfræði-, landafræði- og líffræðideild Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi
Síðast uppfært nóvember 2000.
URL: http://sigurlaug.arnarson.is/liffraedi/hormon/hormon5/einkenni.htm