|
Sjúkdómurinn stafar af of mikilli framleiðslu líkamans á efnaskiptahormónum thýroxin og/eða þríjoðtýrónín en þau kallast einu nafni skjaldkirtilshormón. Skjaldkirtilshormónin eru framleidd í skjaldkirtlinum, sem er staðsettur framan á hálsinum, rétt neðan við barkakýlið, fyrir framan og til hliðar við barkan beggja vegna. Hjá flestum sjúklingum stækkar skjaldkirtillinn en hjá sumum verður engin stækkun. Stundum nær ofvirknin til alls kirtilsins en í öðrum tilvikum aðeins til hnúts í skjaldkirtlinum. |
Myndin til hægri lýsir of miklum bruna, en þá tapar manneskjan þyngd. Myndin til vinstri lýsir of litlum bruna, en þá þyngist manneskjan. |