LOL 103, verkefni nemenda haustönn 2000. / Ofvirkur skjaldkirtill.

Hvaða sjúkdómar leiða til ofvirkni í skjaldkirtli?

  • Samhverf og jöfn stækkun á skjaldkirtli sem veldur mikilli aukningu á framleiðslu skjaldkirtilshormónanna (struma diffusa toxica). Kallast einnig Basedow´s og Grave´s sjúkdómar. Herjar yfirleitt á ungt fólk en kemur einnig fyrir hjá eldra fólki.
  • Basedown- einkennin eru víðtæk vegna þess hve víða skjaldkirtilshormón hafa áhrif. Aukinn efnaskiptahraði veldur öfugum einkennum við myxedemu, t.d. háum líkamshita, þurri húð, aukin hjartsláttarhraði, sjúklingur léttist og sálræn áhrif eru t.d. andlegt ójafnvægi, uppstökkt geð, lítil þolinmæði og miklar geðsveiflur. Þessi tegund ofvirknis í skjaldkirtlinum leiðir í þriðjungi tilvika til augneinkenna ( frá vægum óþægindum og þurrkatilfinningu í augum til útstæðra augna þar sem sjúklingur sér jafnvel tvöfalt og sjón skerðist). Augneinkennin nefnast einu nafni Úteygð (Exopthalamus).


Hormónavefurinn. Ofvirkur skjaldkirtill.
Höfundar: Bjarney Sigurlaugsdóttir, Jóhanna Ósk Aradóttir,
Lilja Böðvarsdóttir.
Vefari: Sigurlaug Kristmannsdóttir sigurlaug@arnarson.is
Jarðfræði-, landafræði- og líffræðideild Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi
Síðast uppfært nóvember 2000.
URL: http://sigurlaug.arnarson.is/liffraedi/hormon/hormon5/sjuk.htm