Inngangur:
Markmið æfingarinnar er að læra að nota smásjá, kynnast stækkunargetu hennar og að skoða og teikna frumusýni. Einnig að læra að gera skýrslu um líffræðileg viðfangsefni. Í þessum kafli á einnig að gera grein fyrir helstu hlutum ljóssmásjárinnar, stækkunargetu hennar og merkja inn á myndir sem fylgja með skýrslunni.Efni og tæki:
Ljóssmásjá, burðargler, þekjugler, hnífur, laukur, joð litarefni.Framkvæmd:
Tveir nemendur vinna saman. Taka þarf tillit til annarra og fara varlega með tæki og tól!1) Ljóssmásjá sett í samband og hún stillt. Leiðbeiningar á bls. 49 og bls. 65 í kennslubók hafðar við höndina.Niðurstöður:
2) Kennari kynnir nemendum helstu hluta smásjárinnar og lýsir stækkunargetu hennar.
3) Frumusýni búin til, skoðuð og teiknuð. Merkið inn á myndina það sem þið sjáið.Lauksýni: Bútur af millihimnu sem er á milli laukblaða í lauk. Bútur settur í vatnsdropa á burðargleri. Litað með joð – litarefni og þekjugler lagt yfir. Sýni skoðað í ljóssmásjánni og það teiknað eftir bestu getu.Frumusýni úr munni: Nemandi skefur með fingri eða eldspýtu frumusýni úr slímhúð í eigin munni. Best er að taka sýnið úr góm. Sýni er sett á burðargler og litað með óþynntu joð – litarefni. Þekjugler sett yfir og þekjufrumur skoðaðar í smásjá. Sýni teiknað eftir bestu getu.
Myndir af frumugerðunum sem þið sjáið með merkingum.Túlkun niðurstaða:
Hvaða upplýsingar er hægt að fá með þessari athugun?Skekkjur og mat:
Er hægt að benda á eitthvað sem betur mætti fara? Eru niðurstöður áreiðanlegar?Skýrslu skal skila tölvuunninni á prófdegi. Merkið inn á þessar myndir og látið þær fylgja með skýrslunni: