Nát 123
Markmið:
·
Að nemendur afli sér þekkingar um vetni sem orkugjafa
·
Að nemendur þjálfist í sjálfstæðum vinnubrögðum við öflun
upplýsinga og notkun þeirra við lausn flókinna viðfangsefna
·
Að
nemendur þjálfist í framsetningu upplýsinga
·
Að
nemendur læri að vinna með öðrum
Verkefni:
|
Verkefni
ykkar er að fjalla um þessa fullyrðingu og finna út hvaða rök mæla með og á
móti henni.
Framkvæmd:
Við verkefnið verða
notaðar aðferðir lausnaleitarnáms, sjá http://www.pbl.is
1.
kennslustund: (18/11)
Fyrirlestur um helstu orkugjafa sem mannkyn notar,
kosti þeirra og galla.
2.
kennslustund: (19/11)
Myndið 5 manna vinnuhópa og fjallið um þessi
viðfangsefni:
·
Hvað er vetni og hvað gerir það að
hentugum orkugjafa
·
Hvernig er hagkvæmt að mynda vetni til
orkugjafar
·
Hvernig er besta að geyma vetni
·
Kostir og gallar við notkun vetnis sem
orkugjafa
·
Vetnisknúin farartæki
Skrifið niður það sem þið vitið
um hvert þessara viðfangsefna. Mikilvægt
er að allir nemendur hvers hóps skrifi niður alla punkta sem hópurinn kemur með. Í þetta verkefni fáið þið 30 mínútur.
Hver einstaklingur velur sér
eitt af þessum fjórum viðfangsefnum sem sérsvið. Sérfræðingar um hvert þessara viðfangsefna
koma saman og bera saman bækur sínar.
3.
kennslustund: (20/11)
Sérfræðingar um viðfangsefnin fimm koma saman og
reyna að leita lausna á sínum viðfangsefnum.
Nýtið kennslubókina sem heimild og einnig ljósrit frá kennara. Sérfræðingar móta 2-3 spurningar sem þeir
vilja fá nánari umfjöllun um. Sýna skal
kennara spurningar í lok kennslustundar.
Sjá : http://www.gagarin.is/nyorka/index_is.html
4. kennslustund: (24/11) Vetnisverkefni
FÁ kynnt. Vetnisverkefni nemenda úr FÁ - valið sem
framlag Íslands í samkeppni ungra vísindamanna sem haldin var í Budapest í september
2003. Verkefnið fjallar um orkunotkun
íbúðarhúss þar sem notaðir eru endurnýtanlegir orkugjafar og umframorka er
geymd í formi vetnis. Nemendum gefst kostur á að bera fram spurningar sínar. Sjá vef: http://www.fa.is/vetni/
5. kennslustund: (25/11) Vinnuhópar
koma saman og semja greinargerð um notkun vetnis sem orkugjafa. Greinargerðin á að
vera glærusýning (Power-point) á ensku (4-6 glærur) því við ætlum að kynna verkefnið
á erlendri grundu. Verkefnið er liður í
Comeníusar verkefni sem skólinn tekur þátt í og fjallar um vistvæna ferðamennsku.
Vandið frágang og leggið áherslu á gæði efnis en ekki magn. Hver hópur getur valið að fjalla um hvaða
hluta verkefnisins sem hann kýs, en þó í samráði við kennara.
6. kennslustund: (26/11) Vinna
við glærur.
7. kennslustund: (27/11) Glærum skilað. Glærurnar verða til sýnis á netinu á
slóðinni: http://www2.fa.is/deildir/Efnafraedi/nat123/h03/orka/
Mat:
1.
Spurningar sérfræðihóps (20%)
2.
Greinargerð (60%)
3.
Mæting í kennslustundir (20%)