Í áfanganum eru tekin fyrir viðfangsefni úr náttúru og nútímatækni þar sem tvinnast saman nokkur grundvallar eðlis- og efnafræðilögmál og kenningar. Orkulögmálið er þungamiðja áfangans og ýmsar myndir þess tengdar tækni með íslenskar aðstæður að leiðarljósi.
Áfanganum er skipt í fjórar lotur sem nefnast: Inngangur, efnafræði, eðlisfræði, og orka. Í upphafi hverrar lotu verður nánar fjallað um markmið hennar og skipulag. Leitast verður við að nota fjölbreytilegar kennsluaðferðir og virkja nemendur til sjálfstæðrar þekkingaröflunar.
Vikur: 1.-3. Inngangur 4.-9. Efnafræði 10.-12. Eðlisfræði 13.-14. Orka
Lota: Verkefni og verklegar æfingar Hlutapróf Inngangur 10% Efnafræði 10% 40% Eðlisfræði 10% 20% Orka 10% Allir verða að taka hlutaprófin 2 með lágmarks meðaleinkunn 5 og skila 6 verkefnum af 7 á tilsettum tíma. Ef þessu er ekki fullnægt telst áfanga ekki lokið.
Guðfinna Björg Steinarsdóttir, líffræðingur
Guðrún Ingibjörg Stefánsdóttir, matvælafræðingur
Sigurlaug Kristmannsdóttir, líffræðingur