Nát 123, vorfjarönn 2005
Í áfanganum eru tekin fyrir viðfangsefni úr náttúru og nútímatækni þar sem tvinnast saman nokkur grundvallar eðlis- og efnafræðilögmál og kenningar. Orkulögmálið er þungamiðja áfangans og ýmsar myndir þess tengdar tækni með íslenskar aðstæður að leiðarljósi. Nemendur skila tveimur verkefnum.
Áfanganum er skipt í fjórar lotur sem nefnast: Inngangur, efnafræði, eðlisfræði og orka. Í upphafi hverrar lotu verður nánar fjallað um markmið hennar og skipulag.
Vikur: 1. - 2. Inngangur 3. - 5. Efnafræði 6. - 8. Eðlisfræði 9. - 10. Orka
- Lokapróf gildir 80%
- Verkefni gilda 20%.
Sigurlaug Kristmannsdóttir, líffræðingur