LOL 103, verkefni nemenda haustönn 1999
   

Beinavefurinn.

Verkefni í líffæra- og lífeðlisfræði mannsins - LOL 103, unnið af nemendum á haustönn 1999.

Bein eru iðandi af lífi. Tilvitnunin er höfð eftir Ólafi Ólafssyni fyrrverandi landlækni og formanni Beinverndar. Í þessari grein segir Ólafur ennfremur: Beinþynning og beinbrot hafa verið kölluð faraldur 21. aldarinnar líkt og kransæðasjúkdómar 20. aldarinnar. Með þessi orð hans að leiðarljósi leggjum við af stað í gerð þessa verkefnis.

Efni:

  • Vefjafræði beina.
  • Beinmyndun.
  • Gerð beina.
  • Beingisnun.
  • Beinaskrá.
  • Bein.
  • Efni að eigin vali sem tengist beinum.
Hópverkefni:

Vinnið saman í hópum, 2, 3 til 4. Veljið ykkur verkefni og byrjið að afla heimilda. Að viku liðinni þarf að vera búið að mynda hópa og velja verkefni. Á næstu vikum verður hluti af kennslustundum tekinn í þessa hópvinnu. Sjá síðar um nánara skipulag.

Verkefni:

Verkefni á að skila sem vefsíðum eða í tölvupósti til kennara sem vefur síðurnar, því ætlunin er að birta verkefnin á veraldarvefnum.

Miðað er við að:

  • lengd verkefna verði 2-3 (vef)síður á hvern einstakling í hópnum
  • og að hverri síðu fylgi að minnsta kosti ein handteiknuð (og lituð) mynd af einhverju sem tengist verkefninu.
Að sjálfsögðu þarf að vitna í allar heimildir sem notaðar verða og virða lög um höfundarétt.

Verkefnaskil:

Í lok 10. viku.

Skýrsla ársins 1999 um LOL 103/203, sem eru þróunaráfangar í upplýsingatækni. / Til baka á forsíðu..


Beinavefurinn.
Höfundur: Sigurlaug Kristmannsdóttir
Vefari: Sigurlaug Kristmannsdóttir sigurlaug@arnarson.is
Jarðfræði-, landafræði- og líffræðideild Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi
Síðast uppfært 20. desember 1999.
URL: http://sigurlaug.arnarson.is/liffraedi/bein/listi.htm